Velkominn á heimasíðuna mína! Ég kom í heiminn þann 6. október 2003 kl. 12:17. Ég vóg 3622 gr. eða um 14.5 merkur og mældist 50 sm.
Mamma mín heitir Guðbjörg og pabbi minn heitir Kristján. Ég er orðinn stóri bróðir því þann 20. febrúar eignaðist ég lítinn bróður :) Hann á líka heimasíðu sem er Pétur Mikael

Lilypie 5th Birthday Ticker


Arnar

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"

Fallbeyging

nf : Arnar
þf : Arnar
þgf: Arnari
ef : Arnars

Páll

Nafn þetta er biblíunafn, fengið af lýsingarorðinu "paulus" sem merkir lítill.

Fallbeyging

nf : Páll
þf : Pál
þgf: Páli
ef : Páls

Vogin

23. september - 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína..

Ég á alveg fullt af vinum og hér eru heimasíðurnar þeirra:

Diljá Dröfn
Karítas
Þorgerður
Ísmael
Huginn Þór
Kolbrún Ósk
Kristrún Bára
Hrafnhildur Malen
Arnar Logi
Konráð Krummi
Embla
Kormákur
Darri og Breki
Þórdís
Tómas Arnar og Karólína Ósk
Bylgja Rós
Mikael Breki